Sesselja Þrastardóttir



♥ This is me
take it or leave it
hate it or love it
but dont try to change it ♥

Auglýsing

Könnun

Hvort?;*

?

12. febrúar 2007 klukkan 14:39

úff mér finnst ég vera að breytast í strák þessa dagana .nei djók.
Vildi samt óska þess að Tobba væri með mér í skóla, djöfull væri það gaman.
En í alvöru talað, þá held ég að ég umgengist stráka of mikið, ég er meir að segja farin að skoða bíla og mótothjól á netinu. hehe eins og um daginn var ég að tala við Tobbu í símann og hún var að segja mér aðeins frá Þóri og sagði mér að hann ætti mótorhjól.
Ég eitthvað; nú hvernig?
Hún; ööö veit ekki
Ég; er það racer, eða hippi eða kannski krossari?
Hún; HA?
Ég; ohh svona sporthjól eða svona gamlakallahjól?
Hún; what, það veit ég ekki haha. 

Svo var ég farin að tala um kúpik og e-h rugl þegar ég fattaði að hún skildi ekki rassgat hvað ég var að segja. þá var ég bara farin að tala eins og strákur.  heh neeei segi svona.

En til hvers er ég að blogga? það veit ekki neinn um þessa síðu einu sinni?

Ég er að fara til Alicante á Spáni um páskana :D með sundkrökkonum, djöfull verður það gaman! verðum í tvær vikur!
fyrir þá ferð ætla ég að;
-fá flottan maga!
-fá nýtt bikíní
-fara í klippingu
-hætta að naga :D haha right!
-svo var það eitthvað annað, en ég man allt í einu ekki hvað það var ;/
en þessi ferð verður kreisí skemmtileg, þú missir af miklu Þorbjörg!

Það styttist og styttist í afmælið mitt! sem þýðir að það styttist í bólprófið! veee..
Svo er Valentínusardagurinn á miðvikudaginn :O

En ég er farin í Ensku, ákvað bara að skella þessari færslu hér inn, er í eyðu og hef ekki neitt að gera!

Setta:*

Sesselja Þrastardóttir
1 athugasemd

Hvað er fyndnara en dautt barn? -dautt barn í trúðabúning!

27. október 2006 klukkan 20:18
hellú!
Loong time no see.. hehehe 

Nú sit ég hér fyrir framan tölvuna en ekki fyrir framan stærðfræði heimaprófið og hef ákveðið að blogga loksins! en það sem er helst í fréttum er:

- ÉG er komin með spangir uppi og niðri ;/ veit, það sökkar, en ég er farin að venjast því.(já ég þarf að nota beisli Öskrandi )
 - það er kominn vetur, og ég HATA vetur! rok og rigningarkuldi *gubb*
- en ég hef samt ákveðið að vera geggjað dugleg á brettinu mínu og verða betri en Davíð á bretti, og Tobba þú ætlar að aðstoða mig í því.. (haha góðar minningar frá því síðast)  
- mér langar í mótorhjól.. Sindri og pabbi eru búnir að smita mig af þeirri veiki.
 - stundum hugsa ég með mér hvort ég sé ekki bara hommi inní mér því mig langar svo oft í eitthvað strákadót, hehe neee ég held ekki.
- ég fór meir að segja í fótbolta um daginn með Sindra, pabba og þeim og ég var bara helvíti góð. Hugleiddi að hætta í sundinu og byrja að æfa fótbolta. haha en ég held að það muni ekki verða.
- það var Rockabilly- ball um daginn og ég keypti mér miða og var geeeðveikt fín og sæt, en neeeei ég hætti við að fara, ekki spurja afhverju. ætlaði í svona gulum kjól, hann er gulur, þröngur að ofan og kemur svo víður svona út að neðan. geggjað töff, svo var ég með svona háan snúð í hárinu og máluð.
- allir geggjað þunnir í skólanum daginn eftir, láu annað hvort sofandi á gólfinu eða á bekknum .. mjöög fyndið.
- omg helgin mín verður ömuleg.is , ég þarf að eyða henni í að keppa og vinna, sem verður leiðinlegt. er reyndar bara í 100og200 bak.
- en ohh mér langar svo að sjá mýrina, en Tobba sveik mig, og fór á hana með bekknum sínum, hehe og sindri með pabba sínum. kannski að ég og Búi skellum okkur á hana saman. ?

en það sem ég hef bloggað verður einhver að kommenta, annars nenni ég því ekki aftur. Saklaus

lovlov Setta;*
You've always loved him,
And now I can see,
That the one in your heart,
Was never me.



Sesselja Þrastardóttir
6 athugasemdir

Busi!

09. september 2006 klukkan 03:17
hæhæ

Haha ég var sko búin að steingleyma þessari síðu!Tobba minnti mig á hana. Vissi nokkurn veginn að ég myndi ekki standa mig í þessu, en allavega...

þá er ég byrjuð í MH sem er geggjaður skóli :D og busunin var á miðvikudaginn, sjitt hvað ég var hrædd! sko þetta byrjaði þannig:
(er búin að segja öllum þessa sögu)
Ég mætti snemma þennan dag því ég hafði verið að keyra í ökutíma um morguninn. kom eitthvað um korter í 8, þá var enginn á svæðinu! svo svona um átta leytið sá ég milljón busa í hvítum bolum og bláum gallabuxum standa fyrir utan skólann, að drepast úr kulda. Þá kemur allt í einu einn "stór" gaur og öskrar á mig "Ertu busi?!" ég eitthvað "já :s " hann "já drullaðu þér út!"

Svo var okkur loksins hleypt inn í pínu andyri og þar áttum við að syngja MH lagið sem hljóðar svona :
Gleði, gleði gleði, gleði líf mitt er,
Sem Jesús kristur gefið hefur mér
Ég vil þú eignist þetta líf
Því það er gleði, gleði, gleði alla tíð.

Svo var teipað um mittið á okkur blað sem á stóð BUSI! fengum svo miða með alls konar nöfnum á stöðvunum, við áttum alltaf að láta merkja við þegar við vorum búin með stöð. Því okkur var sko sagt að við þyrftum að fara í allar stöðvarnar, annars mættum við ekki fara á ballið eða eitthvað álíka. og ég notla trúði því!
Gólfið var allt merkt með teipi, þar sem við máttum bara ganga og ef við stigum útaf þá var okkur refsað, og ég skal sko segja ykkur að ég steig milljón sinnum, þurfti líka að gera 10 armbeygjur og syngja MH lagið (Gleði,gleði,gleði) :D og þurfti líka að leika kisu þrífa kelling á gólfinu.

En já stöðvarnar voru svona;

í einni stöðinni var krotað á mig grænar samvaxnar augabrýr og greytt smjöri í hárið á mér og ég þurfti að fara uppá borð og dansa við einhverja uppblásna nakta dúkku.  2x sinnum!

Í íslensu 666 eins og það var kallað þá þurfti ég að læra utan að einhverja setningu man ekki ienu sinni hvenrig hún var, standa uppá stól og segja hana í míkrófón, eftir það fékk ég staup með lýsi í og við áttum að taka það öll samtaka um leið og hann segði "einn tveit og BINGÓ en hann byrjaði auðvitað á því að segja einn tveir og NÚ og ég gleypti þetta ófgeð þá, þannig að ég þurfti að taka tvö glös, sem var ógeeeðslegt! hata lýsi.

svo þurfti ég að setja lappirnar ofan í ískalt vatn með klökum í , var að fá krampa þetta var svo kalt! og á meðan makaði einn gaur framan í mig vaseline-i og henti á mig hveiti, sem auðvitað festist framan í mér. Og tróð uppí mig hrárri pulsu! Svo þurfti ég að tilbyðja einhverja gellu sem sat í hásæti og öskra eins hátt og ég gat " Ég vil fá að ríða í kvöld! " "vilt þú ríða mér?" sem var vandræðilegast í heimi því það stóð hrúa af fólki að horfa á mig.

Svo var einhver mysa og pulsur í ruslatunnu sem maður átti að stappa með fótonum, og svo þurfti ég líka að grafa eftir einhverjum kjúklinga baunum sem voru í annanri ruslatunni sem var btw full af einhvejru sulli.

Svo var mér gefin full lúka af mentosi, sem eru svona hvítar kúlur, tróð þeim uppí mig og svo hellti einn uppí mig kók light úr 2L flösku. og flórsykri enn og aftur hent í andlitið á mér.

svo var ég búin að fara í allt nema tvennt þá kom einhver gella bara, ojj miðinn þinn er skítugur! og reif hann ég bara! arg! en nennti ekki að gera þetta aftur því þá komst ég að því að það þurfti ekki að gera þetta!

en jæja man ekki meira í bilii held að það sé flest allt það ógeðslega komið.

En jæja er farin að horfa with out a paddle sem er snilldar mynd ;)

Sessó;*
Sesselja Þrastardóttir
6 athugasemdir

Verslunarmannahelgin

09. ágúst 2006 klukkan 04:07

Það var geðveikt gaman um versló :D
Ég og Sindri skelltum okkur Austur og svona og þar var Döggvi líka.

Það sem við gerðumí stuttu máli var:
-Hitta pabba og mömmu eftir langann tíma hehe :)
-Ég og Sindri skelltum okkur að veiða í Andapolli (sem er btw fullur af fiskum) En nei við veiddum ekkert.
-Sindri og Pabbi stukku fram af brú  í Eyvindará, sem var ísköööld aðeins 7gráður :O sjitt sko. (Ég nennti sko ekki að bleyta mig hohoho)
-fórum í Atlavík í 26 stiga hita :P og ég,Sindri og Döggvi fórum saman í hjóla-bát og þeir notla hoppuðu útí Lagafljótið og skildu mig eftir eina í bátnum. Þannig að ég fór bara í sólbað.
-Svo kl 10 um kvöldið eða eitthvað keyrðum við í Borgarfjörð eystri, og þar voru allir geðveikt vinalegir - og fullir :)  geðveikt næs bær sko.
-Daginn eftir var pabbi og Sindri eitthvað að leika sér á mótorhjólinu hans pabba, svo fórum við á Neskaupstað og horfðum á einhverja mótorhjóla keppni (þeir fengu að ráða) sem var alveg ágætt ;)
-Stuttu seinna keyrðum við á Egilstaði því þá var Sindri að fara heim í flugi :(
-og við fórum einhverja skrítna leið heim, þannig að ég fékk að keyra :D
-Enduðum á Neistaflugi í mesta roki í heimi, og horfðum á flugeldasýningu og eitthvað ;)
-Mánudagur allir farnir,þannig að ég,mamma og pabbi fórum í Mjóafjörð, sem er fallegasti staður á landinu! vá þvílík dýrð! Þessi bær er minni en Bakkafjörður! haha og sko milljón ber! bláber! mmmm...

EN ojj svo keyrðum við mamma og karítas heim í dag og gubb það er ömulegt,
vorum í fokking 8 tíma! frá Reyðafirði að Reykjavík! og rignig ALLAN tímann nema í Reykjavík :D ...ahhh djöfull er gott að vera komin heim!

María mín kemur loksins heim á morgunn :D Búin að vera í 5 vikur útum alla evrópu, þannig að það er eins gott að hún kaupi eitthvað fallegt handa mér :D Tobba,ég sagði henni að kaupa djúpur :D 
og Tobba! hvenar kemur þú heim! sakna þín svooo mikið elskan. Þessar tvær vikur eru búnar að vera alltof lengi að líða. Mig hlakkar svoo til að fá Nammistrenginn minn :D sem mig hefur leeengi dreymt um! haha ;)

En ætla ekkert að hafa þetta lengra, ekki margir sem lesa þetta :D

nema eitt enn, pabbi á afmæli á gay-pride :D hahah og hann skal sko ganga með í göngunni. ;D

og já veit ekki alveg hvenar við förum í útileguna, Kansski næstu viku eða eitthvað, og Ásdís þú kemur og Rósa líka :D 

en okok komið nóg, hef bara svo mikið að segja þessa dagana þegar ég hef ekkert talað við Tobbu!

En bæ ;*

Sesselja Þrastardóttir
5 athugasemdir

Ný síða ;)

28. júlí 2006 klukkan 20:27
Hæ..

ákvað að búa mér til síðu bara uppá funnið ;)

hún er svona rétt í vinnslu er að læra á allt þetta dót.
og já ég ætla að vera geeðveikt dugleg að blogga eins og alltaf :D
En smá fréttir af mér þá er ég og krakkarnir kannski að fara í útilegu um helgina ef það verður ekki rigning og leiðilegt :D og Tobba kemst ekki með :( því hún er á ítalíu, heppna beygla! 
en annars kemur bara eitt safaríkt blogg á næstunni ;)

Luv Setta;*
Sesselja Þrastardóttir
7 athugasemdir